Heim

Auglýsingar

Borði
Borði

Dagatal

<<  Maí 2012  >>
 Má  Þr  Mi  Fi  Fö  La  Su 
   1  2  3  4  5  6
  7  8  910111213
141516171820
21222324252627
28293031   

Á döfinni


Það er ekkert á döfinni.

Skjóðan


Spakmæli maí 2012

Bros: Ljós í andlitsglugganum sem sýnir að hjartað er heima
Frekari fréttir af undirbúningi fyrir gróðursetningardag 19. maí 2012

.
Það er ekki öll sagan sögð af undirbúningnum því eftir var að sækja plönturnar í Kjarr og redda moldinni.

Til verksins var valinn Smári Magnússon og stóra gula flugan sveif eftir Grímsnesinu með Smára og Guðrúnu innanborðs. Þegar í Kjarr var komið gekk afhending frábærlega og tré sérlega falleg og eigum við örugglega eftir að kaupa fleiri tré hjá Helgu í framtíðinni..


 



Guðrún, Helga trjábóndi, vélamaður og Finnsi hleðslumaður




Stóra gula fluga drekkhlaðin - Takk Smári
 
Undirbúningur fyrir gróðursetningardag þann 19. maí 2012

.
Það er svo notaleg tilfinning að skrifa þessi orð, geta hreinlega fullyrt að þessi dagur, gróðursetningardagur í Kerhrauni sé kominn til að vera, fólk hefur haft orð á þvi að þetta sé líka kærkomið tækifæri til að kynnast fólki og svo er þetta náttúrulega stór þáttur í því að gera Kerhraunið að enn meiri sælustað.

Þegar svona dagur er haldinn þarf þó nokkurn undirbúning og skipulagninu og í ár voru það Fanný og Guðrún sem tóku að sér þá skipulagningu en satt best að segja eru hinir meðlimir stjórnarinnar og makar aldrei langt undan.

Það eru ófá verkin sem þarf að huga að, dæmi: panta tré, fá mold, útvega flutning, fá gröfumann til að grafa holurnar, fylla á vatnstankinn og muna að taka slöngurnar með, útvega vélaaðstoð og síðast en ekki síst að plana matarinnkaupin sem virðist vera stærsti hausverkuinn en í ár höfðu 9 boðað komu sína en þegar upp var staðið gæddu 35 manns sér á pylsum og drykkjum...)))))

Í ár bauðst félagsmönnum að kaupa tré og runna frá Skógrækt ríkisins og gróðrastöðinni Kjarri og eins og vanalega voru það all margir sem nýttu sér þetta tilboð.

 



"Blómarós" Kerhraunsins
Nánar...
 
Stjórnarfundardagskrá 15. maí 2012
.
Stjórnarfundur verður haldinn á A-Mokka þriðjudaginn 15. maí og hefst kl. 17:00.

Dagskrá:


1.  Skipulagning gróðursetningar 19. maí

2.  Biskaupstungnabrautin, staðan, næstu skref

3.  Hitaveitan

4.  Vegaframkvæmdir innan Kerhrauns

5.  Stóra sameiginlega svæðið, göngustígar

6.  Önnur mál
 
Kynning á allskonar hreinsiefnum frá Kemi 18. - 20. maí
.
Gróðursetningarhelgina ætla þau Gunni og Sóley en þó aðallega tengasonur þeirra að bjóða Kerhraunurum kynningu á vörum frá heildversluninni Kemi og verður kynningin á planinu hjá þeim hjónum.

Kemi er heildsala með ýmsar vörur, t.d hreinsiefni fyrir heita potta, niðurbrotsefni í rotþrær, lyktareyðir, 
 smurolíur og margt margt fleira.

Þessa helgi verður sérstakur kynningarafsláttur og þeir sem koma fá afhent afsláttarskírteini með 15% afslætti sem gildir framvegis í verslun Kemi að Tunguhálsi 10 í Reykjavík.

Hægt verður að greiða með peningum og debet/kredit korti.

Hlökkum til að sjá sem flesta.
 
«FyrstaFyrri12345678910NæstaSíðasta»

Síða 1 af 95
 

Innskráning